Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- vítavert gáleysi
- ENSKA
- gross negligence
- Samheiti
-
stórfellt gáleysi, stórkostlegt gáleysi (Lögfræðiorðabókin, 2008)
- Svið
- lagamál
- Dæmi
-
[is]
Án þess að það hafi áhrif á gildandi refsilöggjöf skulu aðildarríkin láta vera að höfða dómsmál, að því er varðar brot á lögum af óyfirlögðu ráði eða óviljandi, en þessi mál koma aðeins til kasta aðildarríkjanna ef þau hafa verið tilkynnt samkvæmt þessari reglugerð og reglum um framkvæmd hennar.
Þessi regla gildir ekki í tilvikum þar sem um stórfellt gáleysi er að ræða. - [en] Without prejudice to applicable rules of criminal law, Member States shall refrain from instituting proceedings in respect of unpremeditated or unintentional infringements of the law which come to their attention only because they have been reported pursuant to this Regulation and its implementing rules.
This rule shall not apply in cases of gross negligence. - Skilgreining
-
stórfellt gáleysi: meiri háttar aðgæsluleysi. Felur í sér alvarlegra frávik frá þeirri háttsemi sem tjónþola bar að viðhafa en þegar um almennt gáleysi er að ræða. Ekki er skilyrði að tjónvaldur hafi verið meðvitaðri um möguleika á tjóni. Aðeins er stigsmunur á almennu gáleysi og s.
(Lögfræðiorðabók. Ritstj. Páll Sigurðsson. Bókaútg. CODEX - Lagastofnun HÍ. Reykjavík, 2008.) - Rit
-
[is]
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008 frá 20. febrúar 2008 um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu og niðurfellingu tilskipunar ráðsins 91/670/EBE, reglugerðar (EB) nr. 1592/2002 og tilskipunar 2004/36/EB
- [en] Regulation (EC) No 216/2008 of the European Parliament and of the Council of 20 February 2008 on common rules in the field of civil aviation and establishing a European Aviation Safety Agency, and repealing Council Directive 91/670/EEC, Regulation (EC) No 1592/2002 and Directive 2004/36/EC
- Skjal nr.
- 32008R0216
- Athugasemd
-
,Gáleysi´ er í íslenskum rétti flokkað í ,almennt gáleysi´, samh. einfalt gáleysi, (e. negligence) annars vegar og ,vítavert gáleysi´, samh. stórfellt gáleysi, (e. gross negligence) hins vegar. ,Minni háttar gáleysi´ (e. slight negligence) er lægra stig gáleysis en ,almennt gáleysi´.
- Aðalorð
- gáleysi - orðflokkur no. kyn hk.
- ÍSLENSKA annar ritháttur
- stórfellt gáleysi
stórkostlegt gáleysi
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.